Fréttaskot
Strandagangan fer fram á skíðasvæði Skíðafélags Strandamanna í Selárdal á Ströndum laugardaginn 11. mars 2023.
Strandagangan er almenningsganga fyrir fólk á öllum aldri, jafnt byrjendur sem lengra komna og er hluti af Íslandsgöngumótaröðinni.
Þetta er 29. árið í röð sem gangan er haldin en fyrsta Strandagangan var haldin árið 1995.
Í boði eru þrjár vegalengdir, 5 km, 10 km og 20 km, og þeir sem ljúka 20 km göngu fá stig í stigakeppni Íslandsgöngunnar.
20 km. fyrir 17 ára og eldri Skráningargjald til 1. mars 8.000 kr. Eftir það 10.000 kr
10 km. ekkert aldurstakmark Skráningargjald til 1. mars 6.000 kr. Eftir það 8.000 kr.
5 km. ekkert aldurstakmark Skráningargjald til 1. mars 4.000 kr. Eftir það 5.000 kr.
Ræst verður með flæðandi starti og verður opið fyrir ræsingu í 30 mínútur, frá kl. 11:00 til kl. 11:30.
Ekki verða drykkjarstöðvar í ár og fólk því hvatt til að vera með vatn í beltisbrúsum eða bakpokum.
Skráningu lýkur kl. 23:59 fimmtudaginn 9. mars.